Hættulegar aðstæður á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls
25.08.2026
Mynd: Jędrzej Koralewski á Pexels.
Ferðamálastofa vill vekja athygli á tilkynningum frá Útivist, Ferðafélagi Íslands og Björgunarsveitinni Dagrenning Hvolsvelli vegna hættulegra aðstæðna sem nú hafa myndast á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls.
Undanfarin ár hefur jökullinn verið að hopa og í kjölfarið hafa gil og sprungur opnast. Á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála hafa einnig myndast brattar brekkur og skriður þar sem áður var snjór eða jökulís.
Eftir mikla rigningu síðustu daga hefur snjó tekið upp og leiðin er ófær yfir gil og vatnssvelgi. Félögin vilja því eindregið vara fólk við því að leggja af stað í göngu yfir Fimmvörðuháls því eins aðstæður eru í dag er ekki ráðlagt að ganga leiðina.
Sameiginlegt verkefni þeirra sem koma gönguleiðinni er að finna nýja og öruggari leið á þeim hluta gönguleiðarinnar þar sem hættulegar aðstæður hafa skapast vegna hopunar jökulsins. Ferðafólk er ávalt til að sýna aðgát, kynna sér aðstæður vel og hafa öryggi ávallt í fyrirrúmi þegar ferðast er um krefjandi aðstæður í íslenskri náttúru.