Fara í efni

Guðrún Bergmann útnefnd Ferðafrömuður ársins 2004

Athyglisverðar gistináttatölur Hagstofunnar
Athyglisverðar gistináttatölur Hagstofunnar

Guðrún Bergmann, ferðþjónustubóndi og umhverfissinni á Hellnum Snæfellsnesi, var útnefnd Ferðafrömuður ársins 2004 af Útgáfufélaginu Heimi. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti Guðrúnu viðurkenninguna við setningu Ferðatorgs 2005 í Smáralind síðastliðinn föstudag.

Þetta var í annað sinni sem Heimur stendur fyrir útnefningu á Ferðafrömuði ársins og í máli Maríu Guðmundsdóttur, riststjóra hjá Heimi, kom fram að dómnefnd hefði verið einhuga í ákvörðun sinni. Í viðurkenningarskjali segir : "Í mati sínu lagði dómnefnd til grundvallar frumkvæði, metnað og framúrskarandi árangur á sviði umhverfismála í uppbyggingu ferðaþjónustu á Vesturlandi sem og mikilsvert framlag til betra starfsumhverfis í atvinnugreininni á landsvísu."

Á myndinni afhendir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra Guðrúnu viðurkenninguna og María Guðmundsdóttir frá Heimi fylgist með. Ljósmynd: HA