Gripið til ráðstafana í Reynisfjöru
Sem kunnugt er skemmdust útsýnispallur, öryggisskilti og annar búnaður í Reynsifjöru á dögunum vegna ágangs sjávar. Í dag er staðan þannig að fjörukamburinn sem útsýnispallurinn stóð á er vel aðgengilegur og þaðan er gott útsýni yfir fjöruna, stuðlabergið, Dyrhólaey og brimið.
Fer eftir sjólagi hvort fjaran sjálf er örugg
Fyrir neðan fjörukambinn er að myndast aftur sandfjara, þessi fjara liggur þó um 2 m lægra en fjörukamburinn og fer algjörlega eftir sjólagi hvort þar er öruggt að vera.
Ný öryggisskilti eru í framleiðslu
Til bráðabirgða verður sett upp öryggisskilti á fjörukambinum og einnig tímabundið band sem bendir fólki á að fara ekki lengra. Ný öryggisskilti eru í framleiðslu og til stendur að byggja upp útsýnispall og öryggisbúnað með vorinu, segir í frétt frá landeigendum.
Fyldist með ösluspá á Saftravel
Þar sem ljósabúnaður á svæðinu er ekki virkur er fólki bent á að fylgjast með ölduspánni á Safetravel.Við rauðar aðstæður skal fólk ekki fara lengra en að fjörukambi.
Reynisfjara er opin, þar eru næg bílastæði, salerni og veitingastaður.