Fara í efni

Grímur Sæmundsen kjörinn formaður SAF

Grímur Sæmundsen á aðalfundi SAF í dag. Mynd af vef SAF.
Grímur Sæmundsen á aðalfundi SAF í dag. Mynd af vef SAF.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, var kjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), á aðalfundi samtakanna í dag. Grímur fékk 55% atkvæða, en mótframbjóðandi hans Þórir Garðarson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Iceland Excursions-Allrahanda, 45% atkvæða.

Grímur tekur við embættinu af Árna Gunnarssyni, forstjóra Flugfélags Íslands.

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn fyrir næsta starfsár samtakanna:

Bergþór Karlsson, framkvæmdastjóri Hölds / Bílaleigu Akureyrar
Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia
Eva María Þórarinsdóttir Lange, framkvæmdastýra Pink Iceland
Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela
Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Hvalaskoðunar Reykjavíkur
Anna G. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri AGMOS ehf.

Nánar á vef SAF