Fara í efni

Grettistak í kynningarmálum innlendrar ferðaþjónustu

undirritun
undirritun

Í dag var undirritað samkomulag um sameiginlegt markaðsátak sem hvetja á Íslendinga til ferðalaga innanlands. Aðilar að samkomulaginu eru Ferðamálastofa, markaðsstofur allra landshluta og Ferðaþjónusta bænda.

Verkefninu er ætlað að skila mun betri nýtingu fjármuna og markvissari markaðssetningu öllum aðilum í ferðaþjónustu til heilla. „Íslendingar ættu hiklaust að leyfa sér að vera ferðamenn á Íslandi og greiða fyrir þjónustu og afþreyingu, fá leiðsögn um okkar einstæðu náttúru- og menningarminjar, panta gistingu og kaupa góðan mat,“ sagði Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, í kjölfar undirritunarinnar. Ólöf bætti því við að Ísland sé kraumandi af spennandi ævintýrum fyrir alla fjölskylduna. „Hér heima er hægt að upplifa svo margt sem er alveg einstakt á heimsvísu.“ Átakið mun standa næstu þrjú árin og í sumar verður nýtt vefsvæði undir formerkjum herferðarinnar opnað.

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, olof@ferdamalastofa.is Sími: 695 2039

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun í morgun.

Efri röð frá vinstri: Davíð Samúelsson, Markaðsstofu Suðurlands; Kristján Pálsson, Markaðsstofu Suðurnesja; Rósa Björk Halldórsdóttir, Markaðsstofu Vesturlands; Ásbjörn Björgvinsson, Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi og Gústaf Gústafsson, Markaðsstofu Vestfjarða. Neðri röð frá vinstri: Dóra Magnúsdóttir, Höfuðborgarstofu; Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri; Sigrún Lóa Kristjánsdóttir, Austurbrú (Markaðsstofu Austurlands) og María Reynisdóttir, Ferðaþjónustu bænda.