Fara í efni

Gosið í Grímsvötnum (uppfært kl. 08:40)

Grimsvotn
Grimsvotn

Minni kraftur virðist vera í gosinu í dag, mánudag, en öskufall er enn mikið. Gangi öskuspár eftir eru taldar góðar líkur á því að flugvellir á suðvesturhorninu verði opnaðir síðdegis eða í kvöld og Akureyrarflugvöllur upp úr hádegi.

Fólki þó bennt á að fylgjast vel með á heimasíðum flugfélaganna og Keflavíkurflugvallar (sjá tengla neðar í fréttinni) þar sem aðstæður eru fljótar að breytast. 

Þjóðvegur  1 er lokaður frá Vík í Mýrdal austur yfir Skeiðarársand að Freysnesi.

Áhersla er lögð á að koma sem réttustum upplýsingum á framfæri við fjölmiðla erlendis og til þess nýttar ýmsar leiðir. Viðbragðshópurinn, sem stýrði málum þegar gaus á síðasta ári, þ.e. fulltrúar stjórnvalda, SAF, Íslandsstofu, Ferðamálastofu, Almannavarna, flugfélaganna o.fl. sér uym að samhæfa aðgerðir.

Upplýsingar á ensku
Ferðaþjónustuaðilum er bennt á vefinn www.iceland.is og að ráðleggja viðskiptavinum sínum og öðrum sem hafa samband að fara þangað inn.  Þar er staðan uppfærð jafnóðum og þar er bein tenging inn á Almannavarnir.  Þessar upplýsingar eru allar á ensku.  Ennfremur er gagnlegt að fara inn á ensku síðu Veðurstofunnar www.imo.is . Ferðaþjónustuaðilar eru beðnir að benda gestum, sem eru strandaðir hér, að fara í Upplýsingamiðstöð ferðamála í Aðalstræti og fá ókeypis gestakort 24 tíma.

Ef erlendir fjölmiðlamenn hafa samband er best að benda þeim á að hafa samband við fjölmiðlavaktina í Almannavörnum í síma 570-2634.  

Ferðafólki og öðrum er bent á að fylgjast með á eftirtöldun síðum.

Upplýsingar um flugumferð:

Ástand vega:

Almennar upplýsingar um gang gossins og öryggisráðstafanir:

Upplýsingar til erlendra ferðamanna:

Hjálparlína og þjónustumiðstöðvar

Búið er að opna þjónustumiðstöðvar, sitt hvorum megin gossvæðisins og opna fyrir hjálparlínu þangað sem fólk getur hringt vanti það upplýsingar um aðstæður eða annað sem tengist eldgosinu og hvernig best sé fyrir fólk að bregðast við á gossvæðinu. Önnur miðstöðin er í félagsmiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri og hin er í Hofgarði í Öræfum. Á seinni staðnum eru sálfræðingur á vegum almannavarna til reiðu.

Hjálparlínan sem fólk getur hringt í er með símanúmerið 1717. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um aðstæður og fleira það sem er gott að vita fyrir líf á gossvæðinu.

Fólk er hvatt til að vera ekki á ferðinni. Skyggni er mjög slæmt og víða er myrkrið svo mikið að fólk sér ekkert frá sér.