Fara í efni

Golf og ferðaþjónusta - málþing

golfvöllur suðurnesjum
golfvöllur suðurnesjum

Samtökin Golf Iceland boða til málþings um golf og ferðaþjónustu fimmtudaginn 26. apríl 2012 kl 13:30 á Hilton hóteli.

Mikil umræða hefur verið um mikilvægi þess að fjárfesta í vöruþróun í ferðaþjónustu um allt land og þar sérstaklega verið litið til afþreyingar fyrir vaxandi fjölda gesta.  Á Íslandi eru um 70 golfvellir,sem dreifast um allt landið. Hér er því nú þegar mikið framboð af þessari eftirsóttu afþreyingu og varan er tilbúin.

Samtökin GOLF ICELAND voru stofnuð 2008 af hópi golfklúbba og hópi ferðaþjónustufyrirtækja auk Golfsambands Íslands og Ferðamálastofu í þeim tilgangi að vinna að kynningu og markaðssetningu þessarar afþreyingar.  Markaðurinn er stór og vaxandi. Um 50 milljónir kylfinga eru í heiminum þar af eru um 6 milljónir í Evrópu. Um 30% kylfinga fara árlega í golfferð utan heimalands.  Þessir ferðamenn eru eftirsóttir enda eyða þeir allt að 100% meira en almennir ferðamenn á sínum ferðum.

Erlendum kylfingum sem leika hér á Íslandi hefur fjölgað verulega á undanförnum árum og ljóst að íslenskir golfvellir í okkar sérstæða landslagi og einstöku birtu vekja mikinn áhuga og ánægju þeirra sem hér spila. Ísland hefur tvö undanfarin ár verið tilnefnt af golfblaðamönum í lokaúrslit um titilinn „ Besti nýi óþekkti golfáfangastaðurinn í heiminum“

Á málþinginu verður farið nánar yfir þá möguleika sem eru til staðar fyrir okkur að ná meiri árangri og hvað frekar er hægt að gera í þeim tilgangi. Meðal fyrirlesara á málþinginu er Per Persson frá Golf Skåne/Svíþjóð. Hann hefur unnið að því frá 2003 að markaðssetja Svíþjóð sem “ nýjan” golfáfangastað. Per mun fara yfir hvernig golklúbbar og ferðaþjónustan í Svíþjóð hafa komið golfi á framfæri og nýtt þá afþreyingu sem aðdráttarafl.

Þá verður fjallað um hvað golfklúbbar geta gert  betur  til að laða til sín fleiri kylfinga og hvar skóinn kreppir í  móttökuþættinum í ljósi reynslunnar.

Einnig verður farið yfir möguleika ferðaþjónustunnar til frekara samstarfs og nýtingar á þessari miklu fjárfestingu í afþreyingu um allt land.

Meðfylgjandi er dagskrá málþingsins.  Málþingið er öllum opið

Óskað eftir að þeir sem ætla að sækja málþingið sendi póst á  info@golficeland.org

Dagskrá:

Hótel Hilton - Fimmtudaginn  26. apríl  kl 13:30-15:30

1. Magnús Oddsson stjórnarformaður Golf Iceland:     
Setning málþings.

2. Per Persson Project Leader Golf Skane/Svíþjóð:     
How Sweden has been working with golf as a reason to visit Sweden

3.  Árni Gunnarsson formaður Samtaka ferðaþjónustunnar:
Hvers er að vænta í ferðaþjónustunni og hvaða möguleikar eru tengdir golfi sem afþreyingu um allt land?

4.  Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri  Golfkl. Keilis:
Hvernig tökum við á móti og þjónum vaxandi fjölda erlendra kylfinga?

Að loknu hverju erindi verða fyrirspurninr til frummælanda.

Fundarstjóri er Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands