Fara í efni

Gistiskýrslur 2006 komnar út

Gistiskýrslur 2006
Gistiskýrslur 2006

Hagstofa Íslands hefur gefið út ritið Gistiskýrslur 2006 þar sem birtar eru niðurstöður gistináttatalningar fyrir árið 2006. Meðal annars kemur fram að heildarfjöldi gistinátta var 2,5 milljónir árið 2006 sem er 10% aukning frá fyrra ári.

Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2005 á öllum tegundum gististaða. Fjölgunin nam 10,1% á hótelum og gistiheimilum, 11,8% á svefnpokagististöðum, 11,4% á farfuglaheimilum, 10,3% á tjaldsvæðum, 10,1% í orlofshúsabyggðum, 6,6% í skálum í óbyggðum og 4,9% á heimagististöðum.  

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum.  Aukningin var hlutfallslega mest á Suðurnesjum og nam 26,8%. Á Norðurlandi eystra fjölgaði gistinóttum um 13,9%, á höfuðborgarsvæðinu um 12,3%, á Austurlandi um 12% og á Norðurlandi vestra um 11,2%. Fjölgun gistinátta á Vesturlandi nam 7,4% og á Vestfjörðum 5,4%. Gistinætur á Suðurlandi nánast stóðu í stað því þar fjölgaði gistinóttum um 0,9%.