Fara í efni

Gistinóttum í janúar til apríl fjölgaði um 9,4% milli ára

Ísland kynnt í Kanda
Ísland kynnt í Kanda

Gistinætur á hótelum og gistiheimilum fyrstu fjóra mánuði ársins 2004 voru 258.771 en voru 236.607 fyrir sama tímabil árið 2003. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar sem birtar voru í dag.

Mest aukning á Austurlandi
Á þessu tímabili fjölgaði gistinóttum í öllum landshlutum. Mest var aukningin á Austurlandi en þar nam hún rúmum 3000 gistinóttum eða sem nemur 41,5% og á Norðurlandi vestra (41,2%), en minnst aukning var á Suðurnesjum, eða 3,7%. Fjölgun gistinátta á hótelum og gistiheimilum janúar-apríl á bæði við um íslenska (10,7%) og erlenda gesti (8,8%).

  2003 2004 Breyting, %
 
Allt landið 236.607 258.771

9,4

 
Höfuðborgarsvæðið 167.972 182.370 8,6
Suðurnes 9.668 10.029 3,7
Vesturland 5.968 7.035 17,9
Vestfirðir 2.003 2.335 16,6
Norðurland vestra 1.744 2.462 41,2
Norðurland eystra 14.196 14.764 4,2
Austurland 7.313 10.347 41,5
Suðurland 27.743 29.429 6,1

Framboð og nýting
Alls voru 171 hótel og gistiheimili opin fyrstu fjóra mánuði ársins 2004, en það eru 5 fleiri staðir en árið á undan. Herbergjafjöldi fór úr 4.740 í 5.031 milli ára (&,2% aukning) og rúmafjöldi úr 9.622 í 9.995 (3,9% aukning).

Nýting gistirýmis fór úr 28,5% í 30,7% milli ára fyrir landið í heild. Á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum versnaði nýtingin meðan hún batnaði á landsbyggðinni fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil árið 2003. Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.