Fara í efni

Gistinóttum fjölgaði um 7,5% á milli ára

Stefnt að könnun meðal erlendra ferðamanna
Stefnt að könnun meðal erlendra ferðamanna

Út er komið ritið Gistiskýrslur 2004 þar sem birtar eru niðurstöður úr gistináttatalningu Hagstofu Íslands fyrir árið 2004. Þar kemur fram að gistinóttum fjölgaði um 7,5% frá árinu 2003.

Heildarfjöldi gistinátta var 2.133.630 árið 2004. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2003 á hótelum og gistiheimilum (7,3%), heimagististöðum (17,9%), svefnpokagististöðum (12,2%), á tjaldsvæðum (10,6%) og á farfuglaheimilum (6,9%). Gistinóttum fækkaði hins vegar í orlofshúsabyggðum (-3,6%) og í skálum í óbyggðum (-2,1%).

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Aukningin var hlutfallslega mest á Suðurnesjum (17,5%), Norðurlandi vestra (15,9%) og á Vesturlandi (11,1%). Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 7,8%, á Norðurlandi eystra um 7,3% og á Suðurlandi um 5,5%.  Á Austurlandi nam fjölgunin 4,1% og á Vestfjörðum 4,0%.

Í heftinu eru niðurstöður talningarinnar birtar í töflum, myndum og yfirlitum. Ritið er aðgengilegt í PDF-formi á vef Hagstofunnar.