Fara í efni

Gistinóttum fækkaði um 5% í júlí

Gisting júlí 2010
Gisting júlí 2010

Tölur Hagstofunnar um gistinætur á hótelum í júlí sýna að þeim fækkaði um 5% á milli ára. Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 193.500 en voru ríflega 203 þúsund í sama mánuði árið 2009.

Fækkun gistinátta í júlí náði til allra landsvæða nema Vesturlands, Vestfjarða og Suðurnesja. Gistinóttum fækkaði mest á Norðurlandi úr 25.000 í 23.000 eða 8%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 117.200 í 109.600 um tæp 7% miðað við sama tímabil árið 2009. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum einnig, úr 12.500 í 11.900 eða um 5%. Á Suðurlandi fækkaði gistinóttum úr 30.900 í 29.800 eða um rúm 3% samanborið við júlí 2009. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum um rúmlega 12%, úr 9.400 í 10.500. Á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum einnig, fóru úr 8.400 í 8.700, 4% milli ára.

Fækkun gistinátta á hótelum í júlí nær bæði til erlendra gesta og Íslendinga. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði um 15% samanborið við júlí 2009 og  gistinóttum erlendra gesta fækkar um 4%.

Þróunin fyrstu sjö mánuðina
Gistinætur fyrstu sjö mánuði ársins voru 763.700 en voru 773.600 á sama tímabili 2009. Gistinóttum fjölgaði á Vesturlandi og Vestfjörðum ásamt Suðurlandi yfir þetta tímabil um tæp 3%. Fækkun á höfuðborgarsvæðinu er um 3% en gistinætur eru svipaðar í öðrum landshlutum miðað við sama tímabil 2009.

Fyrstu sjö mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 9% á meðan gistinóttum  útlendinga fjölgar um 1% miðað við sama tímabil 2009.

Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.