Fara í efni

Gistinóttum á hótelum í október fjölgaði um 2,5% á milli ára

Gistinætur
Gistinætur

Hagstofan hefur birt tölur um gistinætur og gestakomur á hótelum í október síðastliðnum. Þar kemur fram að gistinæturnar voru 86.100 samanborið við 84.000 í október í fyrra. Aukningin nemur 2,5%.

Líkt og sl. 5 mánuði varð hlutfallslega mest aukning á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 4.800 í 6.700 (39,3%). Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um tæp 7%, úr 9.500 í 10.200 milli ára. Gistinætur á hótelum á Norðurlandi voru 4.000 í október sl en voru 3.800 árið 2004, sem er tæplega 5% aukning. Á höfuðborgarsvæðinu var 0,5% samdráttur gistinátta, fóru úr 63.150 í 62.850. Á Austurlandi nam samdrátturinn rúmum 13% er gistinætur fóru úr 2.700 í 2.400.

Fjölgun gistinátta á hótelum í október árið 2005 er eingöngu vegna útlendinga, en þær fóru úr 63.200 í 66.100 milli ára (4,6%). Gistinóttum Íslendinga fækkaði um 4% á sama tíma, úr 20.800 í 20.000.

Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið (í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann). Tölur fyrir 2005 eru bráðabirgðatölur.