Fara í efni

Gistinóttum á hótelum í nóvember fjölgaði um rúm 8% milli ára

Gisting1105
Gisting1105

Samkvæmt gisináttatalningu Hagstofunnar voru gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum 57.400 talsins en voru 53.000 í sama mánuði árið 2004. Aukningin á  milli ára er 8,2%.

Gistinóttum fjölgaði á öllum landsvæðum í nóvembermánuði, en hlutfallslega var hún mest á Suðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 4.200 í 5.900 milli ára (42%).  Á Austurlandi nam aukningin 18%, en gistináttafjöldinn fór úr 1.200 í 1.400.  Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fóru gistinæturnar úr 4.300 í 5.000 sem er aukning um 16%.  Gistinætur á hótelum á Norðurlandi voru 2.650 í nóvember síðastliðnum en voru 2.600 árið 2004, sem er 2% aukning.  Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um rúmlega 1.600, en þær fóru úr 40.800 í 42.400 milli ára (4% aukning).

Fjölgun gistinátta á hótelum í nóvember árið 2005 er bæði vegna Íslendinga og útlendinga