Fara í efni

Gistinóttum á hótelum í mars fjölgaði um 12% á milli ára

Gisting í mars 2006
Gisting í mars 2006

Hagstofan hefur birt nýjar tölur um gistinætur á hótelum. Þar kemur fram að gistinóttum í mars síðastliðnum fjölgaði um 12% á milli ára og jafnframt liggur þá fyrir að gistinóttum fjölgaði um 9% á fyrsta ársfjórðungi.

Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 73.100 en voru 65.200 í sama mánuði árið 2005, sem er 12% aukning sem fyrr segir. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur fóru úr 1.200 í 1.800 milli ára (55%). Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum úr 5.100 í 6.900 (36%). Á Suðurlandi nam aukningin 19% en gistináttafjöldinn þar fór úr 6.900 í 8.200. Aukningin á höfuðborgarsvæðinu nam 9,5% en þar fóru gistinæturnar úr 47.300 í 51.800 milli ára. Norðurland var eina landsvæðið þar sem samdráttur varð, en gistinóttum fækkaði þar um 8,5%, úr 4.700 í 4.300. Fjölgun gistinátta á hótelum í febrúar árið 2006 má bæði rekja til Íslendinga (28%) og útlendinga (5%).

Gistirými á hótelum í marsmánuði jókst milli ára, en hótel sem opin voru í mars síðastliðnum eru einu fleiri en árið á undan. Fjöldi herbergja fór úr 3.377 í 3.581 (6%) og fjöldi rúma úr 6.776 í 7.312 (8%).

Fyrstu þrjá mánuði ársins fjölgaði gistinóttum um 9% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 154.200 í 169.400 milli ára. Fjölgun varð á öllum landsvæðum nema Norðurlandi þar sem fjöldinn stóð í stað.

Hagstofan vekur athygli á að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. Þá eru tölur fyrir árið 2006 eru bráðabirgðatölur.