Fara í efni

Gistinóttum á hótelum í janúar fjölgaði um tæp 13% milli ára

Gisting febrúar 2006
Gisting febrúar 2006

Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 40.600 en voru 36.000 í sama mánuði árið 2005, sem er 13% aukning.  Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofunni sem annast gistináttatalningar og birti niðurstöður fyrir janúar í dag.

Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 2.500 í 4.500 milli ára (80%).  Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 600, úr 1.100 í 1.700 (50% aukning).  Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 8,5%, en gistináttafjöldinn fór úr 28.900 í 31.300.  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um rúm 3%.  Samdráttur varð á Suðurlandi, en þar fór gistináttafjöldinn úr 2.500 í 2.000 milli ára (-17%). 

Fjölgun gistinátta á hótelum í janúar árið 2006 var bæði vegna Íslendinga og útlendinga.  Fjöldi hótela sem opin voru í janúar síðastliðnum voru 64 talsins, en þau voru 66 í janúar á síðasta ári.  Samdráttur á framboði gistirýmis í janúar á sér eingöngu stað á Suðurlandi en þar voru opin 11 hótel miðað við 13 árið 2005.

 

Hagstofan vekur athygli á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.  Tölur fyrir 2005 og 2006 eru bráðabirgðatölur.