Fara í efni

Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 14% milli ára

Gisting febrúar 2007
Gisting febrúar 2007

Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 63.500 en voru 55.900 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 7.600 nætur eða tæplega 14%. Þetta kemur fram í talningu Hagstofunnar á gistinóttum.

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem þeim fækkaði um 9%, úr 5.600 í 5.100. Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur ríflega tvöfölduðust, fóru úr 900 í 1.900 milli ára. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 2.000, úr 4.700 í 6.700 (42%). Á Norðurlandi nam fjölgunin 14% í febrúar, en fjöldi gistinátta fór úr 2.900 í 3.300 milli ára. Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu voru 46.400 í febrúar síðastliðnum en voru 41.700 í sama mánuði árið 2006 og fjölgaði þar með um tæplega 4.700 nætur, eða 11%.

Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6% og útlendinga um 17%, en gistinætur þeirra voru um 70% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í febrúar.

Gistirými á hótelum í febrúarmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.507 í 3.798, 8% aukning og fjöldi rúma úr 7.118 í 7.730, 9% aukning. Hótel sem opin voru í febrúar síðastliðnum voru 69 en 70 í sama mánuði árið 2006.