Fara í efni

Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði um 11%

Gisting 0807
Gisting 0807

Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum, samkvæmt gistináttatalningu Hagstofunnar, voru 181.500 en voru 163.800 í sama mánuði árið 2006. Þetta er fjölgun um 17.700 nætur á milli ára eða tæplega 11%.

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem fækkun gistinátta nam 1% og á Austurlandi þar sem fjöldi gistinátta stóð í stað milli ára. Aukningin var hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fjölgaði um tæp 15%, úr 95.100 í 109.300 milli ára. Á Norðurlandi nam aukningin rúmum 13%, en gistinætur þar fóru úr 17.600 í 20.000 milli ára. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 6%, úr 23.200 í 24.600.

Fjölgun gistinátta á hótelum í ágúst má bæði rekja til Íslendinga (20%) og útlendinga (10%). Gistirými á hótelum í ágústmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 4.049 í 4.568, 13% aukning og fjöldi rúma úr 8.157 í 9.359, 15% aukning. Hótel sem opin voru í ágúst síðastliðnum voru 78 en 76 í sama mánuði árið 2006. Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.