Fara í efni

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæp 9% á milli ára

gistinaetur
gistinaetur

Hagstofan hefur birt tölur um fjölda gistinátta í desember síðastliðnum og þá jafnframt fyrir allt árið 2004. Samkvæmt þeim fjölgaði gistinóttum um tæp 9% á árinu 2004 miðað við árið á undan og í desember nam fjölgunin tæpum 8%.

Gistinóttum á hótelum í desember fjölgaði um tæp 8% milli ára
Gistinætur á hótelum í desember sl. voru 37.390 en voru 34.720 árið 2003 (7,7% aukning). Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um rúm 1.000 en þær voru 2.360 í desember síðastliðnum, en voru 1.310 í sama mánuði árið 2003. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fóru gistinæturnar úr 2.190 í 3.030 sem er aukning um rúm 38%. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 200 þegar þær fóru úr 770 í 970 milli ára. Á Norðurlandi átti sér stað aukning um rúm 16% þegar gistináttafjöldinn fór úr 1.150 í 1.340 milli ára. Gistinóttum á hótelum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði örlítið, eða um rúmt 1% en gistinætur þar fóru úr 29.300 í 29.690 í desembermánuði.

Gistinóttum á hótelum árið 2004 fjölgaði um tæp 9% milli ára
Fjöldi gistinátta á hótelum árið 2004 voru 965.110 árið 2004 en voru 889.390 árið 2003 (8,52% aukning). Fjölgun gistinátta átti sér stað í öllum landshlutum nema á Norðurlandi þar sem samdráttur nam tæpu 1% milli ára og töldust gistinæturnar 80.290 árið 2004. Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi, um 22% og fór gistináttafjöldinn úr 33.250 í 40.600 milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur á hótelum árið 2004 653.930 árið 2004, en þær voru 598.830 árið 2003 (9,2% aukning). Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 8,5%, en gistinæturnar fóru úr 105.730 í 114.710. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum nam aukningin rúmum 7% milli ára þegar gistináttafjöldinn fór úr 70.600 í 75.580 milli áranna 2003 og 2004.

Þegar litið er á gistinætur á hótelum allt árið frá árinu 1998 má sjá að aukningin nemur tæpum 37% á tímabilinu sem er nánast eingöngu vegna útlendinga (49% aukning).

Aðeins heilsárshótel
Hagstofan vekur athygli á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. Fjöldi hótela í þessum flokki gististaða voru 70 talsins árið 2004, en voru 66 árið á undan. Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.

http://www.hagstofa.is