Fara í efni

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæp 11% í október

Gisting okt 2007
Gisting okt 2007

Hagstofan hefur birt tölur um gistinætur á hótelum í október síðastliðnum. Þar kemur fram að þær voru þá 108.300 samanborið við 97.900 október 2006. Fjölgunin nemur 10.400 nóttum eða tæplega 11%.

Gistinóttum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða. Hlutfallslega varð fjölgun mest á höfuðborgarsvæðinu þar nam hún rúmum 16%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 71.500 í 83.000 milli ára. Á Norðurlandi var aukning gistinátta um 3%, þar fóru gistinætur úr 6.300 í 6.400. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða var fjölgun gistinátta um 4%, þar fjölgaði gistinóttum úr 7.100 í 7.400. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í október milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækkaði úr 3.600 í 2.100, 41%. Á Suðurlandi var lítil breyting milli ára, eða um 1% samdráttur. Fjölgun gistinátta á hótelum í október má bæði rekja til Íslendinga 24% og útlendinga 6%.