Fara í efni

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 13%

Gisting 2006
Gisting 2006

Hagstofan hefur birt tölur um fjölda gistinátta í desember og þar með liggur heildarfjöldinn á árinu 2006 einnig fyrir. Á árinu 2006 í heild fjölgaði gistinóttum um 13% frá fyrra ári.

Gistináttafjöldinn fór úr 1.035.100 í 1.168.900 milli ára.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Hlutfallslega varð aukningin mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 23%.  Á Norðurlandi nam aukningin 17%, Austurlandi 14%, höfuðborgarsvæðinu 12% og á Suðurlandi 6%.  Fjölgun gistinátta á þessu tímabili skiptist þannig að gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 14% og útlendinga um 13%.   Eins og áður sagði vegur fjölgun gistinátta útlendinga þyngra þar sem gistinætur þeirra eru um 79% af heildarfjölda gistinátta á hótelum þetta tímabil. Sömu sögu er að segja um gistinætur á höfuðborgarsvæðinu, en þær nema um 67% af heildarfjölda gistinátta.

Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir Suðurnes, Vesturland og Vestfirði eru lagðar saman og birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir á Suðurnesjum og Vestfjörðum eru fáir. Tölur fyrir 2006 eru bráðabirgðatölur.