Fara í efni

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 7% í nóvember

Gistinætur nov 2009
Gistinætur nov 2009

Hagstofan hefur birt tölur um gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum. Þar kemur fram að gistnæturnar voru þáu 71.800 en voru 77.500 í sama mánuði árið 2008. Fækkunin nemur rumum 7%. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og Norðurlandi.

Á Austurlandi fækkaði gistinóttum um 45% miðað við nóvember 2008, úr 1.500 í 800. Á höfuðborgarsvæðinu fóru gistinætur úr 60.600 í 54.600 sem er 10% samdráttur milli ára. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum úr 5.700 í 5.400 eða um 6%.  Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi úr 6.700 í 8.000 eða um tæp 20%. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára eða um 3.000. Gistinóttum erlendra ríkisborgara fækkaði um tæp 9% milli ára og gistinóttum Íslendinga fækkaði einnig milli ára um 4%.

Svipaður fjöldi fyrstu ellefu mánuði ársins
Gistinætur fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.278.300 en voru 1.281.000 á sama tímabili árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 7% og á Suðurlandi um 6%. Á öðrum landsvæðum fækkar gistinóttum eða eru svipaðar milli ára. Mest fækkar gistinóttum á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða eða um 11%.  Fyrstu ellefu mánuði ársins fækkaði gistinóttum Íslendinga um 10% á meðan gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgaði um tæp 3% miðað við sama tímabil árið 2008.