Fara í efni

Gistinóttum á hótelum á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði um 20% milli ára

Gisting 1. ársfj 2007
Gisting 1. ársfj 2007

Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar og mars samanlögðum voru 203.300 en voru 169.900 fyrir sama tímabil árið 2006.  Þetta kemur fram í gistináttatalningu Hagstofunnar.

Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistinæturnar nærri tvöfölduðust milli ára, úr 3.300 í 6.400.  Aukningin nam 22% á Suðurlandi, 21% á höfuðborgarsvæðinu, 11% á Norðurlandi og 0,5% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 27% og Íslendinga um 4%. Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.  Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur