Fara í efni

Gistinóttum á heilsárshótelum fjölgaði um tæp 14% milli ára

Gisting 2011
Gisting 2011

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í fyrra. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinætur á hótelum voru samtals 1.488.400 árið 2011 samanborið við 1.309.700 árið 2010. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2010 um 17% á höfuðborgarsvæðinu, 16% á Suðurnesjum, 9% á Austurlandi, 6% á Norðurlandi og um 3% á Suðurlandi sem og samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða. Á árinu 2011 fjölgaði gistinóttum erlendra hótelgesta um 15% og gistinóttum Íslendinga um 10% samanborið við fyrra ár.

Nánar á vef Hagstofunnar