Fara í efni

Gistinætur og gestakomur á hótelum í október

Niðurstöður innanlandskönnunar kynntar
Niðurstöður innanlandskönnunar kynntar

Hagstofan hefur nú birt bráðabirgðatölur yfir gistinætur og gestakomur á hótelum í október síðastliðnum. Meðal þess sem fram kemur er að miðað við sama tímabil í fyrra þá fækkar gistinóttum í öllum landshlutum nema Suðurlandi. Þar er um verulega fjölgun að ræða.

Ekki nægjanleg skil frá Austurlandi
Þar sem skil á gistiskýrslum septembermánaðar hafa ekki verið nægjanleg fyrir Austurland er ekki mögulegt að birta tölur fyrir þann landshluta að svo stöddu. Hagstofan birtir því ekki heildartölur fyrir landið. Tölur annarra landsvæða eru birtar eins og vanalega.

Gistinætur á höfuðborgarsvæðinu færri en á sama tíma í fyrra
Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu í októbermánuði voru færri en árið 2001. Í október síðastliðnum töldust gistinætur vera 40.010 en árið 2001 voru þær 45.153, sem telst um 11% samdráttur milli ára. Athygli vekur þó að fjöldi íslenskra hótelgesta á höfuðborgarsvæðinu eykst lítillega á þessu tímabili, eða um rúm 3%. Þá fækkar gistinóttum vegna útlendinga um rúm 13%.

Gistinóttum fækkar á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum
Í október fækkaði gistinóttum um tæp 12% í þessum landshlutum. Þar voru gistinætur 4.569 í október síðastliðnum en árið á undan voru þær 5.182. Þess má þó geta að gististöðum í þessum landshlutum fækkaði um einn og rúmum um 42.

Á Norðurlandi fækkar gistinóttum í október
Gistinóttum á Norðurlandi vestra og eystra fækkaði um tæp 8% milli ára. Þá voru gistinæturnar 3.761 árið 2001 en töldust 3.466 í október síðastliðnum. Hótelum á Norðurlandi hefur fjölgað um eitt og hefur rúmum fjölgað um 105 á tímabilinu.

Gistinóttum á Suðurlandi fjölgar
Eins og flesta aðra mánuði ársins fjölgar gistinóttum á Suðurlandi. Þær voru 3.776 í ágúst 2001 en töldust 5.056 í október sl. en það er aukning um tæp 34%. Fjölgunin á bæði við um íslenska og erlenda hótelgesti. Geta má að á Suðurlandi fjölgar gististöðum um 4 á milli ára og rúmum um 303.

Talnaefni
Töflurnar hér á eftir eru á vef Hagstofunnar. Þær eru settar upp í Excel-skjölum og því þarf Excel að vera tiltækt á viðkomandi tölvu svo hægt sé að skoða þær.