Fara í efni

Gistinætur og gestakomur á hótelum í nóvember

Gistimg nóv 2010
Gistimg nóv 2010

Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 70.300 en voru 71.500 í sama mánuði árið 2009. Athygli er vakin á því að tölurnar ná eingöngu til gistinótta á heilsárshótelum, það er sem opin eru allt árið, en ekki til annara gististaða.

Gistinóttum í nóvember fækkaði hlutfallslega mest á Vesturlandi og Vestfjörðum eða um 22%, voru ríflega 1.700 samanborið við 2.200 í nóvember 2009. Á Suðurnesjum voru tæplega 3.000 gistinætur í nóvember, en það er um 5% minna en árið áður. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum einnig um 5%, voru 52.500 samanborið við 55.000 í nóvember 2009. Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öðrum landshlutum. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 37%, voru 1.100 samanborið við 800 í nóvember 2009. Á Suðurlandi voru 8.800 gistinætur í nóvember sem er 21% aukning frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru gistinætur í nóvember tæplega 3.200 og fjölgaði um 4% miðað við nóvember 2009.

Gistinóttum erlendra gesta fækkaði um rúm 2% samanborið við nóvember 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um tæplega 1%.

Nánar á vef Hafstofunnar