Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í nóvember

Gisting nóv 2011
Gisting nóv 2011

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í nóvember ber síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.´

Gistinóttum á hótelum í nóvember fjölgaði um 48%
Gistinætur á hótelum í nóvember voru 115.200 samanborið við 77.600 í nóvember 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 75% af heildarfjölda gistinátta í nóvember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 54% samanborið við nóvember 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 33% fleiri en árið áður. Þessar tölur ríma vel við talningar Ferðamálastofu í Leifsstöð sem sýndu 60% fjölgun erlendra ferðamanna á milli ára í nóvember.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur  91.300 eða um 52% fleiri en í nóvember 2011. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 120%, voru 7.300 samanborið við 3.300 í nóvember 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 43% en þar var fjöldi gistinátta í nóvember 2.100. Á Suðurlandi voru 7.700 gistinætur á hótelum í nóvember sem er um 17% aukning samanborið við fyrra ár. Gistinóttum á Suðurnesjum fjölgaði á milli ára um 16%, voru 4.900 samanborið við 4.200 í nóvember 2011. Gistinætur á Austurlandi voru 1.900 í nóvember og fækkaði um 4% á milli ára.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 20% á fyrstu ellefu mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.696.300 til samanburðar við 1.416.700 á sama tímabili árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 21% en gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 12%.

Nánar á vef Hagstofunnar