Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í mars

gisting mars 12
gisting mars 12

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í mars síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinóttum á hótelum í mars fjölgaði um 38%
Gistinætur á hótelum í mars voru 134.000 samanborið við 97.300 í mars 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 77% af heildarfjölda gistinátta í mars en gistinóttum þeirra fjölgaði um 45% samanborið við mars 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um ríflega 17%.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum, á höfuðborgarsvæðinu voru ríflega 104.300 gistinætur í mars sem er fjölgun um tæp 40% frá fyrra ári. Gistinætur á Suðurlandi voru 13.100 og fjölgaði um 42%. Á Norðurlandi voru tæplega 6.400 gistinætur á hótelum í mars sem er um 25% aukning samanborið við mars 2011. Gistinætur á Suðurnesjum voru um 5.100 sem jafngildir ríflega 15% aukningu frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur á hótelum 3.100 í mars og fjölgaði um 61%. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 5%, voru 2.050 samanborið við 1.950 í mars 2011.