Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í júní

Gisting júní 2012
Gisting júní 2012

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í júní síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinóttum á hótelum í júní fjölgaði um 13%
Gistinætur á hótelum í júní voru 202.500 samanborið við 178.800 í júní 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 86% af heildarfjölda gistinátta í júní en gistinóttum þeirra fjölgaði um 13% samanborið við júní 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga einnig um 13%.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum, á höfuðborgarsvæðinu voru um  133.100 gistinætur í júní sem er fjölgun um tæp 15% frá fyrra ári. Gistinætur á Austurlandi voru 9.300 og fjölgaði um 19%. Á Suðurlandi voru 26.000 gistinætur á hótelum í júní sem er rúmlega 12% aukning samanborið við júní 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur á hótelum 7.900 í júní og fjölgaði þeim einnig um 12%. Gistinætur á Suðurnesjum voru um 8.500 sem jafngildir um 11% aukningu frá fyrra ári. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 4%, voru 17.700 samanborið við 17.000 í júní 2011.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæp 21% fyrstu sex mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu sex mánuði ársins 2012 voru 770.800 en voru 639.400 fyrir sama tímabil árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 23% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 12% samanborið við sama tímabil 2011.