Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í júlí

Þróun gistinátta í júlí.
Þróun gistinátta í júlí.

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í júlí síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast þannig hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

8% fjölgun í júlí 2013

Gistinætur á hótelum í júlí voru 286.200 og fjölgaði um 8% frá júlí í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru 90% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 9% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 3%.

Skipting eftir landshlutum

Á höfuðborgarsvæðinu voru 163.500 gistinætur á hótelum í júlí sem er aukning um 6% frá sama mánuði í fyrra. Á Suðurnesjum voru 14.100 gistinætur í júlí sem er um 38% aukning miðað við júlí 2012. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 17.700 gistinætur í júlí sem er um 23% aukning frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru 30.500 gistinætur í júlí sem er um 8% aukning miðað við júlí 2012. Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi fjölgaði einnig um 8% en þar voru gistinætur um 43.200 samanborið við 40.200 í júlí 2012. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 3% milli ára fóru úr 16.600 í 17.200.

14% fjölgun fyrstu sjö mánuðum ársins

Gistinætur á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins 2013 voru 1.217.500 til samanburðar við 1.041.750 fyrir sama tímabil árið 2012. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 15% samanborið við sama tímabil 2012 á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 10%.