Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í júlí

Gisting júlí
Gisting júlí

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í júlí síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinóttum fjölgar um 16%   
Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 229.100 samanborið við 196.700 í júlí 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 88% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í júlí og fjölgaði gistinóttum þeirra um 13% frá fyrra ári. Mikil aukning var á gistinóttum Íslendinga í júlí þar sem gistinætur voru ríflega 27 þúsund samanborið við 18.000 í júlí 2010 og fjölgar því um rúm 52% á milli ára.

Á höfðuborgarsvæðinu voru 135.800 gistinætur í júlí sem er 21% aukning frá fyrra ári. Á Suðurlandi voru 35.350 gistinætur júlí sem er 16% fjölgun samanborið við júlí 2010. Á Norðurlandi voru gistinætur 25.760 í júlí, jukust um 12% og á Suðurnesjum voru 9.650 gistinætur sem er 11% aukning frá júlí 2010. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur 10.700 sem er 2% aukning milli ára. Á Austurlandi voru gistinætur í júlí svipaðar milli ára eða um 11.800.

Gistinætur fyrstu sjö mánuði ársins
Gistinætur fyrstu sjö mánuði ársins voru 874.000 en voru 775.400 á sama tímabili árið 2010. Þeim fjölgaði því um um rúm 13% milli ára. Gistinóttum fjölgaði milli ára á Suðurnesjum um 18%, á höfuðborgarsvæðinu um 15%, á Suðurlandi um 10% á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða um 6% og á Austurlandi um 2%. Gistinætur á Norðurlandi eru svipaðar milli ára. Fyrstu sjö mánuði ársins hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 11% og gistinóttum Íslendinga um 19%.