Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í ágúst

Gisting ág 2011
Gisting ág 2011

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í ágúst síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinóttum fjölgar um 14%   
Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 217.600 samanborið við 190.500 í ágúst 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 86% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í ágúst og fjölgaði gistinóttum þeirra um 12% frá fyrra ári. Gistinóttum íslendinga fjölgaði einnig, voru 30.850 samanborið við 24.150 í ágúst 2010.

Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði á öllum landssvæðum samanborið við ágúst 2010. Á Norðurlandi voru  23.500 gistinætur í ágúst sem eru um 21% aukning frá fyrra ári. Á Suðurnesjum voru 10.150 gistinætur sem er 17% fjölgun samanborið við  ágúst 2010. Á höfðuborgarsvæðinu voru gistinætur 133.600 í ágúst sem er aukning um 15% og á Suðurlandi voru gistinætur 30.000 sem eru 12% fleiri gistinætur en í ágúst 2010. Á Austurlandi voru 11.200 gistinætur í ágúst, fjölgaði um 9% og á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur 9.300 sem er 2% aukning samanborið við ágúst 2010.

 

Gistinóttum á hótelum fyrstu átta mánuði ársins fjölgaði um rúm 12% milli ára
Gistinætur fyrstu átta mánuði ársins voru 1.085.400 en voru 965.900 á sama tímabili árið 2010. Gistinóttum hefur fjölgað milli ára á Suðurnesjum um 18%, á höfuðborgarsvæðinu um 15%, á Norðurlandi um 6%, á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða og á Suðurlandi um 5%.  Á  Austurlandi hefur gistinóttum fjölgað um 4% frá fyrra ári.

Fyrstu átta mánuði ársins hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 11% og gistinóttum Íslendinga um 20% samanborið við fyrra ár.