Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í ágúst

Gistnætur í ágúst
Gistnætur í ágúst

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í ágúst síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgar um 10%

Gistinætur á hótelum í ágúst voru 239.500 samanborið við 218.500 í ágúst 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 89% af heildarfjölda gistinátta í ágúst en gistinóttum þeirra fjölgaði um 11% samanborið við ágúst 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 3% færri en árið áður.
 
Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur 149.000 eða um 12% fleiri en í ágúst 2011. Á Suðurlandi voru 33.500 gistinætur á hótelum í ágúst sem er um 11% aukning samanborið við fyrra ár. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 8% en þar var fjöldi gistinátta 10.000. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 7%, voru 23.700 samanborið við 25.400 í ágúst 2011. Gistinætur á Austurlandi voru 11.700 í ágúst og fjölgaði um 5%. Gistinóttum á Suðurnesjum fækkaði milli ára um 7% voru 9.900 samanborið við 10.600 í ágúst 2011.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 17% fyrstu átta mánuði ársins

Gistinætur á hótelum fyrstu átta mánuði ársins 2012 voru 1.265.800 en voru 1.085.500 fyrir sama tímabil árið 2011. Á þessu tímabili hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 18% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 9%.