Fara í efni

Gistinætur á hótelum í janúar álíka margar

Gisting jan 11
Gisting jan 11

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í janúar síðastliðnum. Tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 54.200 en voru 54.800 í sama mánuði árið 2010. Á höfuðborgarsvæðinu voru 44.300 gistinætur í janúar samanborið við 44.900 í janúar 2010. Á Suðurnesjum voru 2.900 gistinætur í janúar sem er sambærilegt við fyrra ár. Gistinætur á Norðurlandi voru ríflega 1.500 janúar og fækkaði um 23%, á Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði gistinóttum einnig á milli ára, voru tæplega 800 samanborið við 1.000 í janúar 2010. Á Suðurlandi og Austurlandi fjölgaði hinsvegar gistinóttum á milli ára. Á Suðurlandi voru 3.900 gistinætur í janúar og fjölgaði um 9% frá fyrra ári. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum hlutfallslega meira, þar voru rúmlega 700 gistinætur í janúar sem er 53% aukning miðað við janúar 2010.

Í janúar fækkaði gistinóttum Íslendinga á hótelum um 7% á meðan gistinóttum erlendra gesta fjölgaði um 1% samanborið við janúar 2010.