Fara í efni

Gistinætur á hótelum í apríl svipaðar á milli ára

Gisting apríl 2009
Gisting apríl 2009

Hagstofan hefur birt niðurstöður úr talningu á gistinóttum í apríl síðastliðnum. Þær sýna að gistnætur á hótelum voru svipað margar og í apríl 2008 á landinu öllu en þróuðust þó ólíkt á milli landshluta.

Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 92.100 en voru 91.800 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 6.100 í 6.800 eða um rúm 10%  miðað við apríl 2008. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum úr 65.000 í 66.800 eða um tæp 3% miðað við sama mánuð í fyrra.

Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á Suðurlandi, úr 11.700 í 10.100 eða um 14%. Gistinóttum fækkaði einnig á Austurlandi úr 2.600 í 2.400 eða um tæp 9%. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum um rúm 5%, voru 6.100 miðað við 6.400 í apríl 2008.

Fjölgun gistinátta á hótelum í apríl má aðallega rekja til útlendinga en gistinóttum þeirra fjölgaði um tæp 13% á meðan og gistinóttum Íslendinga fækkaði um 24% miðað við apríl 2008.

Fækkun um 2% fyrstu  fjóra mánuði ársins
Gistinætur fyrstu fjóra mánuði ársins voru 304.100 en voru 310.800 á sama tímabili 2008.  Fjölgun varð á Suðurlandi um rúm 6% og á Norðurlandi um tæp 2%. Fækkun varð á öllum öðrum landsvæðum, mest á Austurlandi eða um rúm 28%.

Fyrstu fjóra mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 17% á meðan gistinóttum útlendinga fjölgar um tæp 5% miðað við sama tímabil 2008.

Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.