Fara í efni

Gistinætur á hótelum í ágúst 2004

Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 135.755 en voru 133.163 árið 2003 (2%). Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 12,5% þegar þær fóru úr 6.909 í 7.771 milli ára. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fór gistináttafjöldinn úr 11.398 í 11.992 milli ára og fjölgaði þar með um 5,2%. Gistinætur á höfuðborgarsvæðinu voru 81.124 í ágúst sl. en voru 79.147 árið 2003, sem er um 2,5% aukning milli ára. Fjöldi gistinátta á hótelum á Suðurlandi er mjög svipaður á milli ára en þar fækkaði gistinóttum úr 19.451 í 19.224 (-1,2%). Á Norðurlandi vestra og eystra átti sér einnig stað fækkun milli ára þegar gistinæturnar fóru úr 16.258 í 15.644 (-3,8%).
Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.