Fara í efni

Fyrstu fimm stjörnu hótel landsins

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Í fyrsta skipti hafa íslensk hótel nú hlotið fimm stjörnu flokkun samkvæmt viðurkenndu hótelflokkunarkerfi. Um er að ræða The Retreat Bláa Lónsins, sem fær fimm stjörnu Superior flokkun og Hótel Grímsborgir í Grímsnesi sem er fimm stjörnu hótel.

Um nokkur tímamót er að ræða. Gæðamál eru íslenskri ferðaþjónustu mikilvæg og hafa stjórnvöld lagt áherslu á þau í stefnumótun fyrir atvinnugreinina. Þetta er því ánægjulegur áfangi á þeirri vegferð.

5 star superior

Hótelin eru vottuð samkvæmt gæðakerfi Vakans en það er eina viðurkennda hótelflokkunarkerfið hérlendis. Samkvæmt reglugerð um gististaði er óheimilt að auðkenna sig með stjörnum eða öðrum merkjum sem gefa til kynna hvers konar gæðaflokkun nema að undangenginni formlegri gæðaúttekt þriðja aðila sem viðurkennd er af stjórnvöldum.

VAKINN er gæða- og umhverfisvottunarkerfi sem Ferðamálastofa stýrir en markmið þess er að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu á Íslandi ásamt því að byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja. Gæðaviðmið Vakans fyrir hótel byggja á gæðaviðmiðum frá evrópska Hotelstars kerfinu sem leitt er af Hotrec, regnhlífarsamtökum hótela og veitingahúsa í Evrópu.  Á heimasíðu Vakans má finna nánari upplýsingar um gæðakerfið og lista yfir þau hótel og gististaði sem uppfylla kröfur til að merkja sig stjörnugjöf.

Ferðamálastofa óskar báðum aðilum innilega til hamingju með glæsilegan árangur.