Fara í efni

Fyrirlestur um viðhald verndaðra svæða

Steve Mc Cool
Steve Mc Cool

Föstudaginn 15. október næstkomandi í Lögbergi, stofu 102 kl. 12:15 mun Steve McCool halda fyrirlestur með yfirskriftinni Sustaining Protected Areas in an Era of Change, Uncertainty and Opportunity á vegum Líf- og Umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands.

Steve er virtur sérfræðingur á  sviði Þjóðgarðastjórnunar. Hann er prófessors Emeritus við Montana háskóla. (sjá http://www.cfc.umt.edu/spotlight/steve_mccool.aspx ) og hefur  ritað  fjölmargar bækur og greinar  um efnið t.d Tourism in National Parks and Protected Areas og Tourism, Recreation and Sustainability ? Linking Culture and the Environment.

Þá hefur hann starfað m.a. fyrir IUCN, International Union for Conservation of Nature http://www.iucn.org/   sem ráðgjafi víða um heim. Þá hefur hann unnið til fjölda viðurkenninga fyrir rannsóknastörf sín í þágu víðáttu og þjóðgarðastjórnunar.