Fara í efni

Fyrirlestur um jarðminjaferðamennsku - geotourism

Jarðminjaferðamennska er skilgreind sem ferðaþjónusta sem byggir á sérstæðri jarðfræði og nýtur stöðugt meiri vinsælda á heimsvísu. Einn virtasti sérfræðingur heims á þessu sviði, dr. Ross Dowling, heldur opinberan fyrirlestur á vegum Háskólafélags Suðurlands og Kötlu Jarðvangs í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins mánudaginn 29. ágúst kl. 15-17.

Vikuna 21. – 28. ágúst verður dr. Ross Dowling aðalkennari á meistaranámskeiði í Háskóla Íslands um þetta efni með sérstakri áherslu á jarðvanga (Geoparks). 

Skráning er hafin á fyrirlesturinn þann 29. ágúst á netfanginu hrafnkell@hfsu.is.  Verð er kr. 7.500 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og dr. Ross Dowling er að finna á heimasíðu Kötlu jarðvangs www.katlageopark.is

Hér er hægt að hlaða niður nánari upplýsingum um fyrirlesturinn og hér  má finna ferilskrá dr. Ross.