Fara í efni

Fundur um náttúruvernd og ferðaþjónustu

Laugafell
Laugafell

Umhverfisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið efna til fundar um náttúruvernd og ferðaþjónustu á Grand Hótel, fimmtudaginn 18. nóvember kl. 8:30-10:00. Á fundinum verður fjallað um nýlega úttekt Umhverfisstofnunar á álagi á friðlýstum svæðum vegna ferðamanna, úrræði til umbóta, fjármögnun þeirra og leiðir til að tryggja að ferðaþjónusta og náttúruvernd fari saman.

Dagskrá:

  • Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
  • Ástand og umbætur á friðlýstum svæðum.
      Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar.
  • Ferðamannastaðir á Íslandi – uppbygging til framtíðar.
      Elías Gíslason, forstöðumaður þróunarsviðs Ferðamálastofu.
  • Uppbygging ferðamannastaða. Fjármögnun, ábyrgð, sjálfbærni.
      Einar Torfi Finnsson, framleiðslustjóri hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, handhafa umhverfisverðlauna Ferðamálastofu.
  • Rekstur og umsjá þjóðgarða og friðlýstra svæða.
      Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.
  • Ávarp Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra.