Fara í efni

Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt

Ferðafólk við Geysi. Mynd: Belli Kins á Pexels.
Ferðafólk við Geysi. Mynd: Belli Kins á Pexels.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald. Þetta kemur fram í frétt á vef stjórnarráðsins.

 

Í frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins, Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stuðla að öryggi, álagsstýringu og verðmætasköpun í ferðaþjónustu líkt og fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

 

Einstaklingar sem hafa ekki skattalega heimilisfesti á Íslandi þurfa að greiða náttúru- og innviðagjald að upphæð kr. 4.500 fyrir skírteinið sem gildir í eitt ár. Utan háannatíma eða á tímabilinu 1. nóvember til 31. maí er gjaldið kr. 3.000. Gjaldið nær ekki til fólks með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem hefur þegar tekið þátt í fjármögnun innviða og náttúruverndar sem skattgreiðendur. Ríkisfang ræður ekki gjaldskyldunni. Hins vegar þurfa allir einstaklingar 18 ára og eldri að afla rafræns aðgangsskírteinis (QR - kóði) fyrir umrædd svæði. Ferðaskrifstofum og ferðasölum verður gert kleift að kaupa skírteini fyrir fram fyrir sína viðskiptavini.

 

Áætlaðar tekjur ríkissjóðs vegna gjaldsins eru sex til sjö milljarðar króna á ári. Fyrir árið 2027 eru tekjur áætlaðar um fimm milljarðar króna, er þá miðað við að lögin taki gildi 1. maí.

 

Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður ekki lengur heimilt að innheimta bílastæðagjöld landsvæða í eigu eða umsjón ríkisins þar sem náttúru- og innviðagjald er innheimt og verða bílastæðagjöld innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum þar með ekki lengur innheimt.

 

Eftirlit á gjaldskyldum stöðum

Gjaldtakan fer fram á þremur fyrrgreindum stöðum sem eru fjölsóttustu ferðamannastaðir í eigu ríkisins og þar með þau svæði sem verða fyrir mestum ágangi ferðamanna. Eftirlit með gjaldtökunni verður á vegum Ferðamálastofu