Fara í efni

Framtíðarsýn Samtaka um heilsuferðaþjónustu kynnt á aðalfundi

Magnús Orri
Magnús Orri

Aðalfundur Samtaka um heilsuferðaþjónustu var haldinn 22. mars síðastliðinn á Grand hotel í Reykjavik. Þar var meðal annars kynnt stefnumótun fyrir samtökin til ársins 2021.

Áður en venjuleg aðalfundarstörf hófust flutti Csilla Mezösi fróðlegt erindi en hún er sérfræðingur í heilsuferðaþjónustu hjá ferðamálaráði Ungverjalands og stjórnarmaður í European Spa Association erindi. Csilla er margfróð um þessa tegund ferðaþjónustu og var erindi hennar afar vel tekið.

Stefnumótun kynnt
Á eftir erindinu tók Dagný H. Pétursdóttir til máls og kynnti stefnumótun fyrir Samtök um heilsuferðaþjónustu til ársins 2021. Framtíðarsýn samtakanna er að öflug heilsuferðaþjónusta verði ein af meginstoðum ferðaþjónustu á Íslandi og að erlendir jafnt sem innlendir gestir njóti sérstöðu landsins á sviði heilsuferðaþjónustu.  Framtíðarsýnin byggir á fagmennsku þeirra sem í greininni starfi  og góðri aðstöðu fyrir gesti, en ekki hvað síst byggir hún á umhverfisvænni orku og einstakri náttúru landsins.

Fjögur meginatriði eru á stefnuskrá samtakanna næstu 10 árin

  • Rannsóknir og þekking:
    Að efla tengsl við háskóla og aðrar stofnanir, hvetja til rannsóknaverkefna
  • Nýsköpun og vöruþróun:
    Námskeiðahald t.d. í samstarfi við  Nýsköpunarmiðstöð, vera vettvangur vöruþróunar, veita hvatningaverðlaun
  • Gæðamál:
    Gerð gæðasáttmála sem allir aðilar að samtökunum undirrita,  vera virk í mótun á gæðakerfi Ferðamálastofu
  • Sölu- og markaðsmál:
    Heimasíða samtakanna verði efld til muna, innra starf samtakanna verði styrkt ásamt því að styrkja grasrótina, hefja markvisst samstarf við Íslandsstofu og að styrkja innviði sölu- og markaðsstarfs.

Formaður samtaka um heilsuferðaþjónustu Magnús Orri Schram (sjá mynd) tók til máls og fór í gegnum dagskrá fundarins. Hann tilkynnti  jafnframt að hann myndi ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku, en sagðist jafnframt ætla að fylgjast með og að halda áfram að vera samtökunum innanhandar ef það gæti orðið verkefninu til framdráttar.