Fara í efni

Framkvæmdanefnd boðar til fundar 9. sept.

Framkvæmdanefnd Inspired by Iceland óskar eftir fundi með aðstandendum verkefnisins
fimmtudaginn 9. september n.k. kl. 13:30-16:30 á Radisson Blu Hótel Sögu.


Tilefni fundarins er að allir sem lögðu fjármuni til verkefnisins fari yfir þann lærdóm sem draga má af því.

Niðurstöður fundarins munu verða nýttar til að meta hvernig best er að haga samvinnu á þessu sviði á næstunni.

Einar Karl Haraldsson formaður framkvæmdanefndarinnar stýrir fundinum.


Iðnaðarráðherra og fulltrúar verkefnisstjórnar, Reykjavíkurborgar, SAF og ferðaþjónustufyrirtækis gera í stuttu máli grein fyrir afmörkuðum hlutum verkefnisins.


Í framhaldinu munu Árni Geirsson og Hulda Steingrímsdóttir, ráðgjafar frá Alta,

Stýra hópvinnu með World Café fyrirkomulagi - theworldcafe.com

Að fundi loknum verður haldið í Iðnó í móttöku í boði iðnaðarráðherra.

-----------------------------------------
Gert er ráð fyrir að einn eða tveir mæti frá hverju fyrirtæki.
Vinsamlegast tilkynnið nöfn þeirra sem koma á
postur@idn.stjr.is

Inspired By Iceland