Fara í efni

Framhaldsstofnfundur flugklasa á Norðurlandi

air 66 n
air 66 n

Framhaldsstofnfundur flugklasans Air 66N verður haldinn í Hofi á Akureyri 21. október nk. kl 13-15. Í auglýsingu eru allir sem hagsmuni hafa af beinu millilandaflugi til Norðurlands hvattir til að mæta til fundarins.

Við viljum kynna ykkur stöðuna í þessu mikilvæga máli sem getur, ef allt gengur upp haft mjög jákvæð áhrif á sölu Íslandsferða á komandi árum og aukið arðsemi greinarinnar.

Við viljum því hvetja ferðaheildsala um allt land til að kynna sér klasann og gerast beinir þáttakendur í verkefninu með eigin hagsmuni og hagsmuni íslenskrar ferðaþjónustu að leiðarljósi, segir í auglýsingu.

Dagskrá:

  • Air 66N, millilandaflug um Akureyrarflugvöll, Arnheiður Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri Air 66N, Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi
  • Vöruþróunarverkefni í gangi, Sigrún Hlín Sigurðardóttir, þróunarstjóri markaðsmála innanlands, Ferðamálastofu
  • Markaðssetning með ferðasöluaðilum, Davíð Jóhannsson, verkefnisstjóri markaðssóknar í Suður og Mið-Evrópu, Íslandsstofu
  • Mikilvægi samstarfs við flugfélög, Guðný María Jóhannsdóttir, viðskiptaþróun, Isavia

Fundarstjóri er Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi.

Air 66N er samstarfsverkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu, sveitarfélaga, stofnana og annarra hagsmunaaðila. Air 66N er leiðandi í að markaðssetja Norðurland sem nýjan áfangastað fyrir millilandaflug allt árið með það að markmiði að fjölga ferðamönnum og lengja dvöl þeirra.

Vinsamlega skráið ykkur á  arnheidur@nordurland.is eða í síma 460 5733.

Auglýsing um framhaldsstofnfund flugklasans Air 66N (PDF)