Fara í efni

Fræðslufundur vegna árlegs endurmats tryggingafjárhæða

Mynd: Háifoss
Mynd: Háifoss

Nú líður að skilum á gögnum vegna árlegs endurmats fjárhæða trygginga hjá ferðaskrifstofum en frestur vegna þeirra er 1. apríl ár hvert. Af því tilefni býður Ferðamálastofa ferðaskrifstofum upp á opinn fræðslufund á Facebook þriðjudaginn 5. mars kl. 10:00

Áætlað er að fundurinn standi í rúmlega 1 klst.

Farið verður yfir eftirfarandi:

  • Grunntryggingafjárhæð og eðli hennar
  • Hvernig reikna á meðalfjölda daga frá fullnaðargreiðslu þar til ferð hefst (N- gildi)
  • Hvernig reikna á meðallengd ferða í dögum (d)
  • Hvaða velta er tryggingaskyld?
  • Hver ber tryggingaskyldu?
  • Sölu þjónustuþátta B2B
  • Ferðir sem tryggðar eru af öðrum (hvernig skal færa þær inn).
  • Hvernig skal færa tekjur og gjöld í bókhald félagsins vegna ferða sem búið er að greiða en ekki búið að framkvæma.
  • Skráning upplýsinga í vefgátt Ferðamálastofu.
    • Upplýsingar um leyfishafa
    • Bókhaldsupplýsingar
    • Skráning rauntalna og áætlunar
    • Seljendur sem eru tryggingaskyldir vegna pakkaferða leyfishafa
    • Fylgigögn
    • Skilum lokið

Starfsfólk Ferðamálastofu þakkar góða þátttöku í könnun á fræðsluþörf vegna árlegs endurmats. Vegna mikils áhuga á fræðslu var ákveðið að senda fræðslufundinn út á Facebook til að gefa sem flestum kost á þátttöku.

Við hvetjum aðila til að senda spurningar tengdar efni fræðslufundarins á netfangið arlegskil@ferdamalastofa.is fyrir mánudag 4. mars og verður leitast við að svara þeim í tengslum við fyrirlesturinn. Einnig verður leitast við að svara þeim spurningum sem kunna að vera bornar upp í Facebook-spjalli á fundinum.