Fara í efni

Fræðslufundur um fuglatengda ferðaþjónustu

Fugl - Kría
Fugl - Kría

Miðvikudaginn 1. apríl nk. verður fræðslufundur um fuglavernd og fuglatengda ferðaþjónustu á Náttúrusetrinu á Húsabakka í Svarfaðardal og hefst fundurinn kl 21.

Erindi flytja Jóhann Óli Hilmarsson og Einar Þorleifsson frá Fuglaverndarfélagi Íslands.
 
Erindi Jóhanns Óla nefnist: Fuglatengd ferðaþjónusta á Íslandi og sérstaða Norðurlands. Hverjir koma og afhverju? Hvernig lokkum við þá hingað? Fuglatengd ferðaþjónusta og sérstaða Norðurlands. Aðstaða fyrir fuglaskoðara, hjálpargögn og annað.

Erindi Einars nefnist: Fuglar, náttúruvernd og líffræðileg fjölbreytni á Íslandi. Þr fjallar hann um fuglalíf á Íslandi og brýnustu fuglaverndarmálin sem að lúta að fuglafriðlöndum, vernd sjaldgæfra fugla, búsvæðavernd, endurheimt votlendis en einnig umfuglafriðunar- og náttúruverndarlög. Einnig verður fjallað um breytingar á fuglalífi á Íslandi, fjölgun tegunda, loftslagsbreytingar og landnám nýrra fuglategunda.

Í fyrirlestrunum er fjöldi ljósmynda af fuglum og búsvæðum þeirra en Jóhann Óli og Einar eru báðir mikilvirkir fuglaljósmyndarar.