Fara í efni

Food and Fun í sjöunda sinn

FoodandFun2005
FoodandFun2005

Matar- og skemmtihátíðin "Food and Fun" hófst í gær en hún stendur  fram á sunnudag.  Hátíðin er nú haldin í sjöunda sinn á fimmtán veitingastöðum höfuðborgarinnar.

Með hátíðinni er stefnt að því að kynna gæði íslenskra matvæla og veitingamennsku, ásamt því að kynna Ísland sem ákjósanlegan áfangastað. Gert er ráð fyrir um sjötíu erlendum fréttamönnum til landsins. Kunnir matreiðslumeistarar frá Bandaríkjunum og Evrópu verða í eldhúsum nokkurra bestu veitingastaða borgarinnar og elda með íslenskum starfsbræðrum sælkeramáltíðir fyrir gesti þá daga sem hátíðin stendur yfir. Sérstakt þema í ár er "ný norræn matargerðarlist" og er í samstarfi við Norðurlandaráð.

Samstarfsaðili "Food and Fun" hátíðiarinnar líkt og undanfarin ár er Iceland Naturally, sem er sameiginlegur kynningarvettvangur íslenskra stjórnvalda og fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu. Verkefnið er sem kunnugt er vistað hjá Ferðamálastofu.

Vert er að benda á matreiðslukeppnina í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsnu, sem hefst kl. 13:00 á laugardag. Þar reyna meistarakokkarnir með sér og er keppnin opin fyrir áhorfendur. Heimasíða Food and Fun.