Fara í efni

Fjölgun gistinátta á hótelum í ágúst

Gisting ágúst 2008
Gisting ágúst 2008

Tölur Hagstofunnar frá ágúst síðastliðnum sýna að gistinóttum á hótelum fjölgaði um 2% á milli ára. Gistinætur í ár voru rúmlega 189 þúsund en rúmlega 186 þúsund í sama mánuði árið 2007.

Fjölgun er öll tilkomin vegna útlendinga og átti sér stað í öllum landshlutum nema á Höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi en þar eru gistinætur svipaðar á milli ára. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um tæp 12%, þar fóru gistinætur úr 17.000 í 19.000.  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 6%, eða úr 10.700 í 11.400. Gistinóttum fjölgaði einnig á Suðurlandi um 2%, úr 27.300 í 27.800 milli ára. Á Höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum úr 110.700 í 110.900 og á Norðurlandi voru gistinætur 20.400 miðað við 20.300 í ágúst 2007.

Rúmlega 2% fyrtu 8 mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu átta mánuði ársins voru 975.500 en voru 951.700 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Suðurlandi um 10% og á höfuðborgarsvæðinu um rúm 1% milli ára. Gistinætur stóðu í stað eða fjölgaði á öðrum landsvæðum. Gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um tæp 8% fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabil árið 2007. Gistinóttum útlendinga fjölgar um rúmt 1% milli ára. Nánar á vef Hagstofunnar