Fara í efni

Fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll í febrúar

linkur á betrilausnir
linkur á betrilausnir

Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli jókst farþegaumferð um völlinn um tæp 12% í nýliðnum febrúarmánuði, samanborið við febrúar í fyrra. Það sem af er árinu hafa tæplega 154 þúsund farþegar farið um völlinn, sem er 13,7% fjölgun á milli ára.

Farþegar á leið til landsins voru tæplega 38 þúsund í febrúar sl. og fjölgaði um 10% á milli ára. Sama hlutfallsfjölgun er sé litið til farþega á leið úr landi. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu.