Fara í efni

Fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll í febrúar

Flugstöð
Flugstöð

Tæplega 93 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í febrúarmánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta er 4,2% fjölgun farþega á milli ára, það er miðað við febrúar í fyrra.

Farþegar á leið frá landinu voru 41.389  í febrúar síðastliðnum, fjölgaði um 9,5% á milli ára. Á leið til landsins voru 41.022 farþegar og fjölgaði þeim um 8,2% miðað við febrúar í fyrra. Áfram- og skiptifarþegar (transit) voru um 10.700 og fækkar aðeins. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu.

Febr. 06 YTD febr.05 YTD Mán.
% breyting
YTD
% breyting
Héðan: 41.389 84.140 37.791 75.294 9,52% 11,75%
Hingað: 41.022 79.280 37.919 68.947 8,18% 14,99%
Áfram: 9.828 11.303 1.924 4.161 410,81% 171,64%
Skipti. 729 14.396 11.587 26.355 -93,71% -45,38%
92.968 189.119 89.221 174.757 4,20% 8,22%