Fara í efni

Fjölgun erlendra gesta í nóvember

Ferðamenn
Ferðamenn

Alls fóru tæplega 23.700 erlendir gestir frá landinu í nóvember um Leifsstöð, sem er lítilsháttar aukning frá því í nóvember á síðasta ári, þegar 23.100 erlendir gestir fóru frá landinu. Aukningin nemur 2,6% milli ára. Þetta kemur fram í talningum á vegum Ferðamálastofu þar sem sjá má skiptingu eftir þjóðerni.

Ferðum Íslendinga utan fækkar hins vegar umtalsvert. Þannig fóru 16.300 utan í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði á síðasta ári fóru tæp 42 þúsund Íslendinga utan, sem gerir 60% fækkun.

Aukning er meðal gesta frá Mið Evrópu, einkum Þjóðverja, Hollendinga og Frakka. Af Norðurlandaþjóðum er aukning meðal Dana og Norðmanna. N.-Ameríkubúum, Bretum og S.-Evrópubúum fækkar hins vegar. Hér að neðan má sjá nánari skiptingu. Heildarniðurstöður úr talningu Ferðamálastofu í Leifsstöð er að finna undir liðnum Talnaefni/Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Erlendir gestir í nóvember eftir þjóðernum
      Aukning/fækkun milli ára 2007/08

 

2007

2008

Fjöldi

%

Bandaríkin 2.375 1.995 -380 -16,0
Bretland 5.150 4.772 -378 -7,3
Danmörk 2.132 2.313 181 8,5
Finnland 456 460 4 0,9
Frakkland 696 799 103 14,8
Holland 457 858 401 87,7
Ítalía 199 182 -17 -8,5
Japan 402 465 63 15,7
Kanada 321 218 -103 -32,1
Kína 522 347 -175 -33,5
Noregur 2.213 2.366 153 6,9
Pólland 764 1.222 458 59,9
Spánn 159 143 -16 -10,1
Sviss 91 99 8 8,8
Svíþjóð 2.025 1.825 -200 -9,9
Þýskaland 995 1.174 179 18,0
Önnur lönd 4.152 4.464 312 7,5
Samtals 23.109 23.702 593 2,6
Ísland 40.943 16.282 -24.661 -60,2
Erlendir gestir í nóvember - eftir markaðssvæðum
 

 

 

Aukning/fækkun milli ára 2007/08

 

2007

2008

Fjöldi

%

N-Ameríka

2.